Jæja langaði bara að deila því með ykkur að ég er í PRÓFUM...2
próf búin, 2 eftir!
Á fimmtudaginn var ég í þroskasálfræðiprófi og þó ég segi sjálf
frá, gekk mér bara alveg glimrandi vel...á mínum mælikvarða
allavegana
Svo í morgun var ég að gera tímaritgerð um
nýyrði og tvítyngi, rosa stuð, eða þannig. Akkúrat núna er ég
að lesa undir 3.prófið mitt, uppeldisvísindi...ekkert rosalega
skemmtilegt, mér finnst hálf niðurdrepandi að lesa um einhverja
fúla kalla sem dóu jafnvel árið 1500! En svona er
þetta! Seinasta prófið mitt er svo stærðfræðin, eða
réttarasagt stærðfræðin og stærðfræðinemandinn! Ég hélt ég
væri að læra að verða grunnskólakennari, en stærðfræðin sem ég er
læra, var mér ekki einu sinni kennd í menntaskóla, þannig að ég
veit ekki hversu mikið þetta fag mun hjálpa mér varðandi yngri
barna kennslu-en það er kjörsviðið sem ég mun velja mér...!
En svona er þetta nú bara enn og aftur!
Svo er það bara tóm gleði á föstudaginn...bekkurinn búinn að
undirbúa djamm og læti...ef ég þekki krakkana í bekknum mínum rétt
verður þetta djamm ársins 
Jæja besta að fara að lesa meira um Arendt og Dewey og hvað sem
þessir kallar heita nú allir!
Adios...Daggrós lærlingur